Færsluflokkur: Bloggar

Miss Chardonney er kominn á klakann

Nýjustu fréttir herma að Borghildur sé kominn á klakann.  Held það sé ekki spurning að hún verði boðinn sem heiðursgestur á fund súkkulaðifélagsins þann 30.mars.   Aldrei að vita nema að eftir svona kræsingar hætti hún við að fara aftur út eingöngu til að komast á fundina okkar.

Fyrst við erum að tala um ...

Fyrst við erum að tala um súkkulaði... þá finnst mér við verða að hafa þessa með.  Þó það væri ekki nema fyrir Borghildi.

Mr Hansen

 

 

 


Þetta hélt ég einmitt

Samkvæmt frétt í Morgunblaðinu þann 23.febrúar þá eykur dökkt súkkulaði einbeintingu. Dökkt súkkulaði getur skerpt heilastarfsemina. Andoxunarefni sem kallast flavonoids eykur blóðstreymið í toppstykkið og með því að blóðflæðið eykst fær heilinn meira súrefni. Áhrifin vara í tvær til þrjár klukkustundir eftir að búið er að neyta súkkulaðisins. Það þýðir hinsvegar ekkert að arka út í búð og fylla körfu af súkkulaði. Of mikið af súkkulaði getur verið heilsuspillandi því það stuðlar að fitusöfnun og þar að auki er ekki verið að tala um hvaða súkkulaði sem er. Þetta á einungis við um dökkt súkkulaði með háu kakóinnihaldi. Að því er fram kemur á vísindavefnum forskning.no hafa breskir vísindamenn kannað áhrifin af því að drekka bolla af heitu súkkulaði þar sem súkkulaði með háu kakóinnihaldi var notað í drykkinn. Þeir komust að því að blóðstreymið til vissra heilasvæða jókst við drykkjuna. Súkkulaðibollinn virðist því auka einbeitingu til skamms tíma.

Til umhugsunar....

30 ástæður fyrir því að súkkulaði er betra en kynlíf.

  1. Þú getur fengið súkkulaði.
  2. "Ef þú elskar mig þá gleypirðu þetta" hefur raunverulega merkingu með súkkulaði.
  3. Súkkulaði fullnægir þó það sé orðið mjúkt.
  4. Þú getur hættulaust fengið þér súkkulaði meðan þú keyrir.
  5. Þú getur látið súkkulaði endast eins lengi og þú vilt.
  6. Þú getur fengið þér súkkulaði fyrir framan mömmu þína.
  7. Súkkulaði kvartar ekki þó þú bítir fast í hneturnar.
  8. Tvær manneskjur af sama kyni geta fengið sér súkkulaði saman án þess að vera kallaðar klúrum nöfnum.
  9. Orðið "skuldbinding" hræðir súkkulaði ekki í burtu.
  10. Þú getur fengið þér súkkulaði í vinnustólnum/við vinnuborðið á vinnutíma án þess að koma vinnufélögunum í uppnám.
  11. Þú getur boðið ókunnugum súkkulaði án þess að eiga það á hættu að vera sleginn utanundir.
  12. Þú færð ekki hár í munninn af súkkulaði.
  13. Með súkkulaði er engin þörf á að þykjast.
  14. Súkkulaði gerir þig ekki ólétta.
  15. Þú getur fengið þér súkkulaði á hvaða tíma mánaðarins sem er.
  16. Það er auðvelt að finna gott súkkulaði.
  17. Þú getur fengið þér eins margar tegundir af súkkulaði eins og þú ræður við.
  18. Þú ert aldrei of ungur eða of gamall til að fá þér súkkulaði.
  19. Þegar þú færð þér frábært súkkulaði þá heldur það ekki vöku fyrir nágrönnunum.
  20. Það er allt í lagi að borga fyrir súkkulaði.
  21. Súkkulaði lítur jafn vel út þegar þú ert edrú.
  22. Þú færð ekki vandræðalegar sýkingar af súkkulaði.
  23. Súkkulaði er sama þó þú sofnir strax eftir að þú hefur fengið þér það.
  24. Þú færð ekki á þig rasistastimpil þó þér finnist ljóst súkkulaði betra en dökkt.
  25. Fólk fer ekki hjá sér þó þú fáir þér súkkulaði á almannafæri.
  26. Þó þú fáir þér súkkulaði með félögum þínum er ekki litið á þig sem saurlífissegg.
  27. Súkkulaði getur ekki krafið þig um meðlag.
  28. Súkkulaði er sama hvorum megin þú sefur í rúminu.
  29. Þú ert ekki kölluð drusla þó þú hafir prófað margar tegundir af súkkulaði.
  30. Enginn slúðrar um með hverjum þú hefur borðað súkkulaði.

Mmmmmm

Ég prufaði súkkulaðiköku uppskriftina sem ég linkaði á hér fyrir neðan.  Vááá hvað hún er góð.  Held það sé ekki spurning, ég mæti með þessa til Helgu 30 mars.  Meira segja börnin sem borða ekki hnetur átu hana með góðri lyst ( það eru heslihnetur í henni)  Haukurinn reyndar talaði um að það væri eitthvað ógeð í henni en eftir að honum var sagt að þetta væru orkufræ var hann alveg sáttur.  Dagurinn í dag fór svo aftur á móti allur í að hreinsa súkkulaðifingraför af veggjum og húsgögnum.  Það sem maður leggur á sig.  Það er erfitt að vera ég.....

Hvar er Eva ......

Mr. Oroblu, óvenjulega glæsilegur í skylmingaroutfitti.  Eins og hann hafi bara labbað útúr myndinni Gladiator.   Mikið hefði nú Borghildur haft gaman af því að hitta hetjuna sína aftur.

En getraun dagsins er : Hvar er Eva ?

slide_20733-059


Löðrandi...

Myndin sem var tekinn á árshátíðinni verður ekki birt opinberlega en það má skoða hana í leiðréttingahóp á milli 9 og 11,30 og svo 13-16.

Hvor er flottari...

Hafliði í Mosfellsbakaríi er að mala skoðanakönnunina um hvor er flottari, hann eða Jói Fel.

Hef grun um að Eva sé semsagt duglegri en Elísa að kjósa.


Mmmm gæti virkað vel

Rakst á þessa síðu og sá þar frekar freistandi uppskrift.  Væri gaman að prófa þessa.  Líst líka ótrúlega vel á kremið.

http://www.veitingastadir.is/uppskriftir/24/default.aspx


Árshátíð

Árshátíð súkkulaðifélagsins var haldin um helgina í Laugardalshöllinni.  Um 1300 manns mættu í sínu fínasta pússi og skemmtu sér með félaginu.   Hafliði í Mosfellsbakarí sá að sjálfsögðu um eftirréttinn sem var súkkulaðimousse af bestu gerð.  Við munum reyna að komast að uppskriftinni og að sjálfsögðu birta hana hér.

Todmobile spilaði svo fyrir félagið og var dansað fram eftir nóttu.   Mikil gleði og glaumur.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband