Jólin eru að koma

Nú er vika í jólin og sá sem þetta ritar er ekki búin að baka eina einustu sort, ekki búin að þrífa, ekki búin að kaupa neinn pakka og ekki búin að skrifa nein jólakort.  Einhvern veginn átti ég ekki von á þeim svona fljótt þó að það sé vitað mál að þau koma á sama tíma á hverju ári. 

Að þessu sinni ætla ég að skella skuldinni á tannlækninn minn sem þurfti endilega að framkvæma stóraðgerð á mér svona rétt fyrir jól.  Það hefur valdið því að ég hef ekki getað borðað neinar smákökur ( og því ekki haft áhuga á að baka þær), ég hef ekki getað þrifið því að ef ég beygi hausinn niður fer nístandi sársauki um hausinn á mér, ekki getað keypt neinar jólagjafir því ég fer ekki útúr húsi nema fullkomlega útlítandi ( gult mar niður á háls og bólginn kjálki er ekki inn í dag ) og ekki getað skrifað jólakort því allir vita að þegar maður skrifar jólakortin þá þarf maður að hafa smákökur að narta í á meðan.  Þess vegna má tannlæknirinn minn lifa með því að hafa eyðilagt fyrir mér og minni fjölskyldu jólin.   Einnig fer hluti af sökinni á Guð almáttugan fyrir að skapa svona vangefna endajaxla sem vaxa útá hlið.

Á morgun þarf ég semsagt að setja í fjórða gírinn og spýta í lófana.  Prógrammið fyrir jól er því eftirfarandi : 

1. baka sjö sortir af misflóknum smákökum, allavega einn skammt af Sörum.

2. Fara í Hagkaupssloppinn og segja Gunna hvað á að þrífa.

3. Þræða stórmarkaði, fara í biðröð í Toys´r us og just 4 kids, lenda í handalögmálum í Bónus og drekka úr mér stressið með léttu sérrýi þegar ég kem heim.

4. Skrifa jólakortin og narta í smákökur og klára sérrýið.

5. Alkazeltser

Þess má geta að jafnframt þarf ég að mæta í vinnu, sækja og fara með börnin, sinna Gunna mínum og passa uppá útlitið.   þetta er því heljarinnar erfiði og ekki fyrir hvern sem er.

Já það er erfitt að vera ég.......

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já LK ég verð nú bara að segja það í hreinskilni.....EKKI  VEIT ÉG HVERNIG ÞÚ ÁTT EFTIR AÐ MEIKA ÞETTA....en allavega gangi þér vel. Og gleðileg alkazeltser jól

HLH (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 11:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband