TIL UPPLÝSINGA ( fyrir þá sem ekki vissu fyrir)

 

Maturinn sem þú borðar þegar enginn sér til hefur engar kaloríur

 Þegar þú borðar með öðrum eru einungis kaloríur í matnum sem þú borðar          umfram þau.

Matur sem er neytt af læknisfræðilegum ástæðum (t.d. jólaglögg, heitt súkkulaði, rauðvín o.s.frv.) inniheldur aldrei kaloríur

Því meira sem þú fitar þá sem þú umgengst daglega því grennri sýnist þú

Matur (t.d. poppkorn, kartöfluflögur,hnetur, gos, súkkulaði og brjóstsykur) sem er borðaður í kvikmyndahúsi eða þegar horft er á myndband er  kaloríulaus vegna þess að hann er hluti af skemmtuninni.

Kökusneiðar og smákökur innihalda ekki kaloríur þar sem þær molna úr þegar bitið er í þær.

Allt sem er sleikt af sleikjum, sleifum, og innan úr skálum eða sem ratar upp í þig á meðan þú eldar matinn inniheldur ekki kaloríur vegna þess að þetta er liður í matseldinni.

Matur sem hefur samskonar lit hefur sama kaloríufjölda (t.d. tómatar = jarðaberjasulta,  næpur = hvítt súkkulaði)

Matur sem er frosinn inniheldur ekki kaloríur því kaloríur eru hitaeiningar

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég held þetta sé rétt hjá þér með frosna matinn...þetta segir sig alveg sjálf þetta er HITA-einingar.

HLH (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 11:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband