Mmmmmm

Ég prufaði súkkulaðiköku uppskriftina sem ég linkaði á hér fyrir neðan.  Vááá hvað hún er góð.  Held það sé ekki spurning, ég mæti með þessa til Helgu 30 mars.  Meira segja börnin sem borða ekki hnetur átu hana með góðri lyst ( það eru heslihnetur í henni)  Haukurinn reyndar talaði um að það væri eitthvað ógeð í henni en eftir að honum var sagt að þetta væru orkufræ var hann alveg sáttur.  Dagurinn í dag fór svo aftur á móti allur í að hreinsa súkkulaðifingraför af veggjum og húsgögnum.  Það sem maður leggur á sig.  Það er erfitt að vera ég.....

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mmm segi ég nú líka. Komdu með hana þann 30. og ég verð með ís með henni...hvernig ætli það virki saman.....mmmmmm.

Helga (IP-tala skráð) 18.3.2007 kl. 13:00

2 Smámynd: Mmmmmm súkkulaðikaka

Held nefnilega að ís væri akkúrat það sem myndi toppa þetta. 

Mmmmmm súkkulaðikaka, 18.3.2007 kl. 18:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband